|
Ármannshlaupið er hratt 10 km götuhlaup sem nú fer fram fjórða árið í röð. Hlaupið heppnaðist einstaklega vel í fyrra, veður var gott og mikið um að hlauparar væru að bæta sig, enda brautin mjög flöt.
Helstu upplýsingar um hlaupið
Tímasetning: 11.júlí 2012 kl. 20:30
Vegalengdir: 10 km hlaup með tímatöku
Staðsetning: Hlaupið verður á hraðri fram og til baka braut. Kort og nánari upplýsingar verða birtar í maí.
Skráning: Tekið verður á móti forskráningum á hlaup.com. Skráning opnar þegar nær dregur.
Þátttökugjald: Nánari upplýsingar þegar nær dregur.
Sveitakeppni: Þrír saman í sveit óháð aldri og kyni. Skráð í sveitir á hlaupdag á staðnum.
Verðlaun:
- Verðlaunagripir fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna
- Sigurvegarar í hverjum aldurflokki karla og kvenna hljóta verðlaun.
- Þátttökupeningar
- Sveitakeppni
- Útdráttarverðlaun
Aldursflokkar: 18 ára og yngri, 19-39 ára, 40-49 ára og 50-59 ára og 60 ára og eldri.
Hlaupaleið: Smellið hér til að skoða hraða og skemmtilega braut Ármannshlaupsins 2011 (10 km). Hlaupaleiðin 2012 er í vinnslu og verður auglýst síðar.
Heimasíða skipuleggjenda: armenningar.is
Úrslit:
Ármannshlaupið 2011: hlaup.com og hlaup.is
Ármannshlaupið 2010: hlaup.com og hlaup.is
Ármannshlaupið 2009: hlaup.com og hlaup.is
Myndir:
Myndir frá hlaupinu árið 2011 má sjá hér á myndasíðu Ármenninga og hér á hlaup.is.
Myndir frá hlaupinu árið 2010 má sjá hér á myndasíðu Ármenninga og hér á hlaup.is.
|