Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Fjölnishlaupið 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Ungmennafélagið Fjölnir hefur um árabil haldið Fjölnishlaupið á heimasvæði sínu í Grafarvogi. Í ár verður hlaupið haldið í 24.sinn.


Helstu upplýsingar um hlaupið


Tímasetning:
17.maí 2012 kl. 11:00


Vegalengdir:
10 km og 1,4 km skemmtiskokk. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í Powerade mótaröðinni. Tímataka verður í 10 km hlaupinu og í skemmtiskokkinu.


Staðsetning:
Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum (við Grafarvogslaug) og komið í mark þar. Vegna breytinga á vellinum verður ekki hægt að hlaupa hringinn í kringum völlinn eins og verið hefur og þarf því að framlengja brautina sem hringnum nemur. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðinni.


Skráning:
Tekið verður á móti forskráningum á hlaup.com fram að miðnætti miðvikudaginn 16. maí. Afhending númera og skráning í anddyri sundlaugar Grafarvogs kl. 10:00 - 10:45 á hlaupadegi. Smelltu hér til að skrá þig.


Þátttökugjöld:
1.500 kr fyrir 10 km hlaup gegn netskráningu en 2.000 ef skráð er samdægurs á staðnum. Fyrir skemmtiskokk er þátttökugjald 700 kr, en hver fjölskylda greiði að hámarki 2.500 kr.


Greiðsla:
Vinsamlegast millifærið rétta upphæð fyrir netskráningar inn á reikning Fjölnis 114-26-347, kt.6901933379 og sýnið greiðslukvittun við afhendingu númera. Einnig er tekið á móti greiðslum á staðnum.


Verðlaun:

  • Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupi
  • Verðlaunagripir fyrir 1. sæti karla og kvenna í skemmtiskokki
  • Verðlaunagripir fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna í 10 km hlaupi
  • Fyrsta sæti í hverjum aldurflokki karla og kvenna í 10 km hlaupi og skemmtiskokki hlýtur verðlaunapening
  • Þátttökupeningar fyrir 15 ára og yngri
  • Glæsilegir útdráttarvinningar


Aldursflokkar:

10 km hlaup 
18 ára og yngri
19-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60 ára og eldri

Skemmtiskokk
10 ára og yngri
11-12 ára
13-14 ára
15 ára og eldri


Drykkir í boði Vífilfells og meðlæti og frítt í sund í lok hlaups


Heimasíða skipuleggjenda: fjolnir.is


Úrslit úr Fjölnishlaupinu 2011: hlaup.is og hlaup.com



Úrslit úr Fjölnishlaupinu 2010: 
hlaup.com og hlaup.is

 
Borði
Borði
Borði
Borði