|
Í gær, Uppstigningardag, var Fjölnishlaupið í Grafarvogi haldið í 24. sinn. Keppt var í tveimur vegalengdum, 10 km hlaupi og 1,4 km skemmtiskokki. 142 hlauparar luku keppni í 10 km hlaupinu og 66 í 1,4 km skemmtiskokki.
Í hlaupinu bar það hæst að Tómas Zoëga Geirsson, ÍR, setti nýtt brautarmet þegar hann hljóp 10 km brautina á tímanum 33:33 mín. Er þetta um 1 mínútu og 20 sekúndum skemmri tími en fyrra met var. Þess má geta að þetta er einnig besti tími Tómasar í 10 km hlaupi. Einungis munaði þremur sekúndum á öðrum og þriðja manni í karlaflokki í 10 km hlaupinu. Var það Björn Margeirsson, UMSS, sem var annar á tímanum 35:01 mín og Jósep Magnússon, Fjölni, hreppti þriðja sætið á tímanum 35:04 mín.
Í kvennaflokki 10 km hlaupsins var það Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR, sem sigraði á tímanum 40:43 mín. Eva Margrét Einarsdóttir, ÍR, hafnaði í öðru sæti á tímanum 42:31 mín og í þriðja sæti var Jóhanna Arnarsdóttir, Hlaupasamtök Lýðveldisins, en hún hljóp á tímanum 43:27 mín.
Heildarúrslit í 10 km hlaupinu má finna hér og myndir sem Björn Ingvarsson tók af þátttakendum í 10 hlaupinu er hægt að skoða hér.
Í 1,4 km skemmtiskokki sigraði í kvennaflokki Katrín Unnur Ólafsdóttir, Fjölni, á tímanum 5:33 mín og í karlaflokki sigraði Daði Arnarson á tímanum 5:23 mín.
Úrslit allra flokka í 1,4 km skemmtiskokki má finna hér.
Meðfylgjandi mynd var tekin við verðlaunaafhendingu af sigurvegurum í 10 km hlaupi. Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá verðlaunaafhendingu. |