|
Forskráning í Miðnæturhlaup Suzuki hefst þriðjudaginn 10.apríl. Smelltu á gula "skráðu þig í næsta hlaup" hnappinn til að skrá þig. Forskráningu lýkur 19.júní á miðnætti.
Í skráningarferlinu er hægt að velja um að greiða þátttökugjaldið með VISA og MasterCard kreditkortum eða með millifærslu í heimabanka. Sé millifærsla valin berst staðfesting á skráningu með töluvpósti frá
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eigi síðar en fyrir kl.16 næsta virka daga eftir greiðslu.
Einnig er mögulegt að skrá sig á hlaupdegi en þá er þátttökugjald hærra en í forskráningu. Sjá nánar í verðskrá. Skráning á hlaupdag fer fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst kl. 16:00. Lokað verður fyrir nýskráningar hálftíma fyrir hlaup.
Skráningargögn verða afhent í Skautahöllinni í Laugardal á hlaupadegi frá kl. 16:00. Vinsamlegast sækið forskráningar eigi síðar en hálftíma fyrir hlaup.
Greiðsluskilmálar og almennir skilmálar
Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.

|