|
Miðnæturhlaup Powerade fer fram í 20. sinn þann 21.júní 2012
Í Miðnæturhlaupi Powerade 2012 verður boðið uppá þrjár vegalengdir
-
3 kílómetra skemmtiskokk án tímatöku
-
5 kílómetra hlaup með tímatöku
-
10 kílómetra hlaup með tímatöku
Upplýsingar um verð, nánari tímasetningar o.fl. verða aðgengilegar hér á heimasíðunni í mars 2012. Skráning hefst í apríl 2012. Allar upplýsingar hér til vinstri á síðunni vísa til hlaupsins 2011.
-------------------------
Metþátttaka var í Miðnæturhlaupi Powerade 2011 sem fór fram í blíðskaparveðri í Laugardalnum en als luku rúmlega 1500 manns hlaupinu, nokkrum fleiri en í fyrra.
Kári Steinn Karlsson Breiðabliki náði glæsilegum árangri þegar hann kom fyrstur í mark í 10km hlaupinu á tímanum 30.26m. Þetta er besti tími sem Kári Steinn hefur náð í götuhlaupi samkvæmt afrekaskrá. Þá er þetta einnig nýtt og glæsilegt brautarmet. Sigurvegari í 10km hlaupi kvenna var Arndís Ýr Hafþórsdóttir Fjölni á 37:55. Í 5km sigraði Cameron Dorn frá Bandaríkjunum á 17:00 en fyrst kvenna var hin 15 ára Aníta Hinriksdóttir ÍR á tímanum 17:49.
|