Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Góð skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 14. ágúst 2009 07:40

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í miðborginni 22.ágúst næstkomandi. Skráning í hlaupið gengur vel og virðist ætla að vera fjölgun á þátttakendum milli ára.

Þann 12.ágúst 2008 voru 2733 skráðir í Reykjavíkurmaraþonið en 12.ágúst 2009 voru 3006 búnir að skrá sig í hlaupið eða 10% fleiri. Mest aukning er á meðal kvenna eða um 20% aukning frá því á sama tíma í fyrra.

Hlauparar frá 42 löndum víðsvegar um heiminn hafa skráð sig í hlaupið og koma flesti frá Bandaríkjunum, Þýskalandi og Bretlandi. Skráðir erlendir þátttakendur eru nú 914 og 2092 Íslendingar.

Reynslan sýnir að flestar skráningar koma síðustu dagana fyrir hlaup og því má eiga von á að um 8.000 manns skrái sig í hlaupið næstu daga. Í fyrra tóku 11.265 þátt í Reykjavíkurmaraþoninu.

Forskráningu hér á netinu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 19.ágúst. Smelltu hér til að skrá þig í hlaupið.

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Kort