|
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 07:30 |
|
Laugardaginn 22.ágúst fer Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fram í miðborginni. Þá verða nýjar hlaupaleiðir í 3 km skemmtiskokki og Latabæjarhlaupi teknar í notkun. Latabæjarhlaupið hefur farið fram á grassvæðinu við Háskóla Íslands undanfarin tvö ár en verður nú fært í Hljómskálagarðinn. Boðið verður uppá þrjár mis langar hlaupaleiðir í kringum Tjörnina og um Hljómskálagarð fyrir mismunandi aldurshópa. Nánari upplýsingar um Latabæjarhlaupið má finna hér.
Skemmtiskokk Reykjavíkurmaraþonsins hefur einnig verið fært nær miðbænum. Hlaupið verður ræst eins og áður í Lækjargötu en hlaupið verður í kringum Tjörnina og Hljómskálagarð. Hlaupið er 3 km og því hentugt fyrir alla aldurshópa. Smelltu hér til að skoða kort af hlaupaleiðinni.
Ekki hafa verið gerðar breytingar á öðrum vegalengdum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2009. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðum.
|