| Stuð og stemning í Reykjavíkurmaraþoni |
|
|
|
| Föstudagur, 20. ágúst 2010 06:28 |
|
Það koma margir einstaklingar, hópar og fyrirtæki að því að skapa góða stemningu á hlaupaleiðinni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka næstkomandi laugardag. Íslandsbanki verður að venju með hressandi uppákomu við útibú sín á Eiðistorgi og við Kirkjusand ásamt því að tónlist í boði Suzuki verður við enda Vatnagarða. Þá verður stórskemmtileg trommusveit, Sláttuvélin, við Lindarbrautina í boði Powerade. Olís hefur góðfúslega gefið leyfi fyrir uppákomum á tveimur bensínstöðvum sínum. Nokkrir hressir hlauparar úr skokkhóp Fjölnis sem eru í hljómsveit saman, verða á bensínstöð Olís við Skúlagötu. Samskip lánar pallbíl sem félagarnir spila uppá. Þá mætir Ólafur Guðmundsson eins og undanfarin ár á tónlistartrukknum sínum og hækkar græjurnar í botn á bensínstöð Olís við Ánanaust. Það er orðin hefð hjá mörgum þeim góðgerðafélögum, sem hægt er að safna fyrir í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið, að mæta útá brautina og hvetja hlaupara. Með þessu vilja félögin þakka hlaupurum fyrir stuðninginn. Á marksvæðinu í Lækjargötu mun Óli Palli sjá um að spila tónlist og Dísa í World Class sér um að hita upp skemmtiskokkara eins og undanfarin ár. Dísa er ein af tryggustu sjálfboðaliðum Reykjavíkurmaraþons og hefur séð um upphitun fyrir skemmtiskokkið í mörg ár. Skemmtistöðvar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2010 má sjá merktar inná kortið hér að neðan ásamt góðum hvatningarstöðum fyrir fjölskyldur og vini hlaupara. |























