Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Áheitasöfnun gengur vel Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 00:34

Söfnun áheita fyrir góðgerðafélög í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur gengið vonum framar og eru áheit á keppendur í gegnum vefinn hlaupastyrkur.is nú þegar orðin rúmlega 11,2 milljónir króna, sem er meira en heildar áheit voru fyrir hlaupið í fyrra. Hlaupið fer fram þann 21. ágúst næstkomandi en hægt er að heita á hlaupara til miðnættis 23.ágúst.

Íslandsbanki og Reykjavíkurmaraþoni kynntu í sumar nýjan áheitavef, hlaupastyrkur.is, sem hlauparar nýta til að safna áheitum hjá vinum og vandamönnum. Þar geta allir sem eru skráðir í Reykjavíkurmaraþonið og ætla sér að safna áheitum stofnað sína eigin síðu sem vinir og vandamenn geta heimsótt og heitið á hlauparann á einfaldan hátt. Vefurinn hefur notið mikilla vinsælda meðal hlaupara og margir nýta síðuna á skemmtilegan hátt til að safna áheitum. Til dæmis hafa nokkrir keppenda náð að safna um og yfir 200 þúsund hver frá einstaklingum og fyrirtækjum til styrktar góðu málefni.

 

 

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Kort