Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Netskráningu lokið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010 12:08

Búið er að loka fyrir skráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 á netinu. Þeir sem ekki náðu að skrá sig á netinu geta skráð sig á skráningarhátíð á morgun föstudaginn 20.ágúst milli kl. 10 og 19.


Skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2010 fer fram í stúkubyggingu Laugardalsvallar. Afhending gagna fyrir Latabæjarhlaup verður í næsta húsi við Laugardalsvöllinn, Félagsheimili Þróttar í Laugardal. Afgreiðsla fer fram frá kl.10:00-19:00. Athugið að um er að ræða nýja staðsetningu frá fyrri árum. 


Mikið verður um að vera á skráningarhátíðinni. Boðið verður uppá nokkra spennandi fyrirlestra og frá klukkan 16 verður pastaveisla fyrir alla þátttakendur í boði Barilla. Auk þess munu ýmsir aðilar kynna heilsutengda starfsemi og vörur. Frá klukkan 15 verður sérstök íþróttadagskrá fyrir börn við félagshús Ármanns og Þróttar. Smellið hér til að skoða dagskrá skráningarhátíðarinnar.


Þó að búið sé að loka fyrir skráningu í hlaupið á vefnum verður áfram hægt að heita á hlaupara á vefsíðunni hlaupastyrkur.is. Opið er fyrir skráningu áheita til miðnættis mánudaginn 23.ágúst.

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Kort