| Björn sigraði í maraþoni fyrstur Íslendinga síðan 1984 |
|
|
|
| Laugardagur, 21. ágúst 2010 12:18 |
|
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur gengið vel í dag. Þúsundir Íslendinga hafa hlaupið um götur borgarinnar og eru enn að. Búið er að veita verðlaun til sigurvegara í keppnisvegalengdum. Smellið hér til að skoða lista yfir sigurvegara dagsins.
Þjóðverjinn Oliver Steininger sigraði í hálfmaraþoni karla og Íris Anna Skúladóttir í hálfmaraþoni kvenna. Steininger var á tímanum 1:16:11 og Íris Anna á 1:26:55. Í 10 km hlaupinu sigruðu þau Jósep Magnússon á tímanum 34:50 og Arndís Ýr Hafþórsdóttir á tímanum 39:01. Óstaðfest úrslit uppfærast sjálfkrafa á HÉR á vefnum á 5 mínútna fresti. Staðfest úrslit og úrslit í aldursflokkum og sveitakeppni verða birt hér á marathon.is fljótlega eftir að tímatöku lýkur kl.14:40. Alls voru 7.319 hlauparar skráðir til þátttöku í hlaupunum sem ræst voru í Lækjargötu í dag. Flestir í 10 km hlaupið eða 3.680 sem er þátttökumet í vegalengdinni. Latabæjarhlaupið fer nú fram í Hljómskálagarðinum og er búist við því að rúmlega 3.000 börn taki þátt. Nánari skráningartölur munu liggja fyrir síðar í dag. |
















Í maraþoni karla kom Björn Margeirsson fyrstur í mark á tímanum 2:33:57. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1984 sem íslenskur karl kemur fyrstur í mark í maraþoni. Árið 1984, í fyrsta Reykjavíkurmaraþoninu, sigraði Sigurður Pétur Sigmundsson en síðan þá og þar til í dag hafa sigurvegararnir verið erlendir. Í maraþoni kvenna kom Rannveig Oddsdóttir fyrst í mark á tímanum 2:57:33 en það er 12 besti tími kvenna í Reykjavíkurmaraþoni frá upphafi og besti tími síðustu fimm hlaupa. Þau Björn og Rannveig eru ásamt því að vera sigurvegarar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010, Íslandsmeistarar í maraþoni 2010.





