| Frábærum árangri í áheitasöfnun fagnað |
|
|
|
| Fimmtudagur, 08. september 2011 11:45 |
|
Í gær miðvikudaginn 7.september kl.17:00-18:00 var haldin uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2011. Hátíðin var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á hátíðinni komu saman fulltrúar góðgerðafélaga, hlauparar og starfsmenn til að fagna góðum árangri áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem fram fór á hlaupastyrkur.is. Söfnunin í ár gekk framar vonum en als söfnuðust 43.654.858 krónur til 131 góðgerðafélags sem er 48% hærri upphæð en safnaðist í fyrra og því mikil ástæða til að fagna. Þau félög sem safnaðist mest fyrir voru Hringurinn, barnaspítalasjóður, 2,4 milljónir, Krabbameinsfélag Íslands, 2,3 milljónir, og Ljósið, endurhæfingu krabbameinsgreindra 2,2 milljónir. Tæplega 80 af þeim 138 félögum sem tóku þátt í söfnuninni fengu meira en 100.000 krónur í sinn hlut, tíu félög fengu meira en milljón. Rúmlega 50% þeirra hlaupara sem tóku þátt í áheitavegalengdum Reykjavíkurmaraþons skráðu sig á hlaupastyrkur.is og söfnuðu áheitum. Um er að ræða 4.056 hlaupara sem er 105% fjölgun frá síðasta ári. Heildarfjöldi áheita var 20.672. Þeir hlauparar sem söfnuðu mest fengu viðurkenningu á áheitahátíðinni í gær. Diljá Mist Einarsdóttir sem hljóp fyrir Styrktarsjóð Susie Rutar safnaði mestu eða 878.500 kr. Næst mestu safnaði Guðmundur Felix Grétarsson fyrir félag sitt, Handahlaup, eða 702.030 kr. Hin 11 ára gamli Viktor Snær Sigurðsson varð í 3.sæti en hann safnaði 544.500 kr fyrir AHC samtökin á Íslandi. Það boðhlaupslið sem safnaði mestu á hlaupastyrkur.is var liðið „Í minningu Katrínar Ingimarsdóttur“ en liðið hljóp fyrir Minningarsjóð líknardeildar Landspítala í Kópavogi og safnaði kr. 677.000. Ingvar Sverrisson, formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur sem rekur Reykjavíkurmaraþon, stjórnaði stuttri dagskrá uppskeruhátíðarinnar. Til máls tóku einnig Eva Einarsdóttir formaður ÍTR, Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka og Erna Magnúsdóttir forstöðumaður Ljóssins sem er eitt af góðgerðafélögunum sem tóku þátt í áheitasöfnuninni. Smellið hér til að skoða myndir frá hátíðinni. Í lok uppskeruhátíðarinnar fengu fulltrúar góðgerðafélaganna upplýsingar um þær fjárhæðir sem til þeirra söfnuðust. Áheitin verða greidd inná reikninga góðgerðafélaganna í október þegar safnað fé hefur skilað sér frá síma- og kortafyrirtækjum. Smellið hér til að skoða áheitaskýrslu Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2011 þar sem fram koma upphæðir sem hvert félag fær greitt.
|
























