|
Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2012 opnar hér á marathon.is miðvikudaginn 18.janúar 2012. Þú getur valið um að skrá þig (eða aðra) í maraþon, boðhlaup (42,2, km), hálfmaraþon, 10 km, 3 km skemmtiskokk eða Latabæjarhlaup. Smelltu á rauða "Skráðu þig í næsta hlaup" hnappinn hér til hægri til að skrá þig.
Forskráningu á netinu lýkur miðvikudaginn 15. ágúst 2012 kl.16:00. Ef áhugasamir um þátttöku hafa ekki skráð sig fyrir þann tíma gefst þeim kostur á að skrá sig á skráningarhátíð, daginn fyrir hlaup þann 17.ágúst.
Skráning er eingöngu gild þegar greitt hefur verið með Visa- eða Mastercard. Að lokinni skráningu fær viðkomandi senda kvittun í tölvupósti skráningunni til staðfestingar. Berist ekki kvittun hefur skráning ekki gengið í gegn. Þau sem hafa ekki aðgang að Visa- eða Masterkorti geta haft samband við Reykjavíkurmaraþon á netfangið:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og fengið aðstoð við skráningu.
Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.
Við afhendingu hlaupagagna þann 17.ágúst eru þátttakendur beðnir að hafa kvittunina meðferðis, það flýtir fyrir afgreiðslu.
Að skráningu lokinni eignast hver einstaklingur sitt svæði undir heitinu: „Mínar síður“ þar sem hægt er að breyta persónuupplýsingum, skrá sig í sveitakeppni og breyta lykilorði. Einnig getur hver hlaupari breytt sinni vegalengd en athugið að greiða þarf mismun á gjaldi ef breytt er í dýrari vegalengd. Til þess að fara inn á mínar síður þarft þú notandanafn og lykilorð sem sent er með tölvupósti eftir að þú hefur skráð þig í Reykjavikurmaraþon. Ef þig vantar þessar upplýsingar er hægt að fá þær sendar með tölvupóst með því að smella á hnappinn "Gleymt lykilorð" og upplýsingarnar verða sendar um hæl á netfangið þitt. Einnig er hægt að fá lykilorð sent með því að senda nafn og kennitölu á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Bolastærð er hægt að fá breytt með því að senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
fyrir 1.ágúst. Ef birgðir endast verður einnig hægt að fá nýja stærð á skráningahátíðinni þann 17.ágúst.
Gangi þér vel!
|