Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Skráningarhátíð 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Þann 17.ágúst er skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2012. Þann dag fá allir þátttakendur afhent keppnisgögn. Meðal annars þátttökunúmer, tímatökuflögu í skóinn og bol. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíðinni.


Skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2012 fer fram í Laugardalshöll. Afgreiðsla fer fram frá kl.10:00-19:00. Mjög gott aðgengi er að húsinu og nóg af bílastæðum. Við Laugardalshöll eru 420 bílastæði og í næsta nágrenni þ.e. við Skautahöllina eru 220 stæði. Einnig eru 600 stæði við Laugardalsvöll sem er stutt frá og 190 við Félagsheimili Þróttar og Ármanns auk þess sem margir strætisvagnar stoppa í nágrenninu. Kort af svæðinu.


Öllum þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er boðið í Barilla pastaveislu í Laugardalshöllinni sama dag og skráningarhátíð er haldin. Barilla pastaveislan hefst kl.16 en henni lýkur kl.19.


Á skráningarhatíðinni munu ýmsir aðilar kynna heilsutengda starfsemi og vörur. Skemmtilegir og fræðandi fyrirlestrar verða einnig í boði eins og undanfarin ár. Þau sem hafa áhuga á að vera með bás á skráningarhátíðinni er bent á að hafa samband við verkefnastjóra Reykjavíkurmaraþons á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði