| Góðir fætur komast beint í mark |
|
|
|
| Fimmtudagur, 04. desember 2008 13:14 |
Sólrún Ó. Siguroddsdóttir, formaður Félags íslenskra Fótaaðgerðafræðinga, skrifaði eftirfarandi texta í afmælisrit Reykjavíkurmaraþons sem kom út árið 2008. Hér má lesa ýmis hollráð um hvernig er best að hirða um fæturna fyrir og eftir hlaup.Fæturnir eru undirstaða líkamans í orðsins fyllstu merkingu og í daglegu amstri getur álagið á þá verið mikið. Þegar fólk fer að hlaupa eykst álagið margfalt og því er nauðsynlegt að hugsa vel um fæturna svo ekkert fari úrskeiðis og ánægjan af hreyfingunni verði eins og til er ætlast. Skór eru grundvallaratriði í þessu tilliti og til þess að koma í veg fyrir álagsmeiðsli þurfa skórnir fyrst og fremst að passa vel. Best er að kaupa skó seinni part dags því fæturnir þrútna örlítið yfir daginn. Gæta skal vel að því að þeir séu nógu stórir -tærnar eiga ekki að nuddast fram í skóinn og athugið að það þarf að máta fleiri pör til að finna það par sem passar best. Innlegg skóna þurfa einnig að passa fótum viðkomandi. Það geta verið þau innlegg sem fylgja skónum eða sérsmíðuð innlegg sem gerð eru sérstaklega fyrir hvern og einn og þarf þá að gæta þess að nóg pláss sé fyrir þau í skónum. Húðin er viðkvæm gagnvart núningi og blöðrur geta myndast á smástundu. Þá er fljótt í að ánægjulegt hlaup breytist í eithvað allt annað. Því þarf að huga vel að húðinni og sjá til þess að hún haldist heil. Mörgum reynist vel að nota húðplástra ( second skin) á viðkvæm svæði áður en farið er í hlaup til að fyrirbyggja að nudd eða sár myndist . Ýmsir bera líka feit krem á fætur sína fyrir hlaup en til eru sérstök fótakrem sem mynda himnu á húðina og draga mjög úr núningi. Táneglur þarf að klippa reglulega. Þvert fyrir og ekki of stutt og svo þarf að pússa hornin svo þau stingist ekki í húðina eða vaxi niður. Álagið á neglurnar er mikið við hlaup og þær geta orðið fyrir miklu hnjaski, til dæmis getur blætt undir þær og þær jafnvel losnað og því er um að gera að huga vel að þeim. Það er heillaráð fyrir alla hlaupara að fara til fótaaðgerðafræðings til að fá góða meðferð og ráðleggingar varðandi umhirðu fótanna til að halda þeim heilbrigðum, enda eru heilbrigðir og hraustir fætur undirstaða þess að hægt sé að stunda þessa íþrótt. FIF tók um árabil þátt í undirbúningi Reykjavíkurmaraþons en félagar skoðuðu þá fætur keppenda og gáfu góð ráð í sambandi við umönnun þeirra. Samvinna þessi var mjög ánægjuleg og margir hlauparar komu og fengu skoðun og ráðleggingar.
|





















