|
Stigahæsti karl og stigahæsta konan í öllum fimm Powerade sumarhlaupunum samanlagt hljóta gjafabréf í flug frá ferðaskrifstofunni VITA. Hlauparar í öðru sæti fá íþróttaskó frá Asics og hlauparar í þriðja sæti fá vörur frá Vífilfelli. Það er árangur í vegalengdinni 10 km í öllum hlaupunum sem gildir til stiga í Powerade sumarhlaupunum nema í Víðavangshlaupi ÍR þar sem 5 km hlaup gildir til stiga.
Einnig er stigakeppni í aldursflokkum og hljóta stigahæstu hlaupararnir í eftirfarandi aldursflokkum karla og kvenna vörur frá Vífilfelli.
18 ára og yngri 19-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60 ára og eldri
Í síðasta hlaupi Powerade sumarhlaupanna, Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, verður dregið um verðlaun meðal allra keppanda mótaraðarinnar sem tekið hafa þátt í tveimur eða fleiri hlaupum. Hlaupari sem tekur þátt í öllum hlaupunum á meiri möguleika á að fá verðlaun þar sem hann fær nafn sitt fimm sinnum í pottinn sem útdráttarverðlaun eru dregin úr. Þeir sem hlaupa í fjórum hlaupum fá nafn sitt fjórum sinnum í pott o.s.frv. Í verðlaun eru vörur frá Vífilfelli.

|