|
Á sumardaginn fyrsta, 19. apríl, verður Víðavangshlaup ÍR þreytt í 97. sinn en árið 1916 var hlaupið fyrst haldið og þá að enskri fyrirmynd. Síðan þá hefur hlaupið verið árviss viðburður og á sinn hátt hluti af hátíðarhöldum Reykjavíkur og mun hlaupið vera sá íþróttaviðburður hér á landi sem á lengsta samfelda sögu.
Að þessu sinni verður um fjórfalda keppni að ræða og verða veitt verðlaun fyrir hvert þeirra sérstaklega:
- Víðavangshlaup ÍR, sjá upplýsingar um verðlaun hér fyrir neðan.
- Fyrsta Meistaramót Íslands í 5 km götuhlaupi. Hlaupaleið verður mæld skv. alþjóðlegum reglum og árangur viðurkenndur á afrekaskrá. Sigurvegarar í karla- og kvennaflokkum hljóta meistaratign í 5 km götuhlaupi. Einnig eru veitt verðlaun fyrir fyrstu fimm manna sveitir karla og kvenna.
- Powerade sumarhlaupin - verðlaun veitt eftir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.
- Afmælishlaup Verkfræðingafélags Íslands (VFÍ) en þann 19. apríl heldur VFÍ upp á 100 ára afmæli félagsins. Í tilefni afmælisins efnir félagið til hlaupakeppni milli félagsmanna sinna. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sætin í karla og kvennaflokki og sigurvegarinn í hvorum flokki fær listmun til gjafar, sjá nánar á www.vfi.is.
Einnig verða veitt vegleg útdráttarverðlaun, m.a. ferðavinningar frá Úrval Útsýn, ÍTR og fleirum.
Tími og staðsetning 19. apríl nk., kl. 12:00 við Ráðhús Reykjavíkur. Hlaupið verður á götum, stígum og gangstéttum umhverfis Tjörnina.
Vegalengd 5 km en hlaupaleiðin er mæld og viðurkennd af Frjálsíþróttasamabandi Íslands.
Skráning Forskráning á hlaup.is til miðnættis 18. apríl og eru þátttakendur hvattir til að nýta sér það. Einnig er hægt að skrá sig í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kl. 10 og þar til 15 mínútum fyrir hlaup, gegn hærra skráningargjaldi. Forskráðir sig geta sótt gögnin sín í anddyri Frjálsíþróttahallarinnar í Laugardal 16:30-19:00 daginn fyrir hlaupdag, miðvikudaginn 18. apríl. Annars verða gögn afhent í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 19. apríl á milli kl. 10 og 11:45 eða þar til 15 mínútum fyrir hlaup. Keppendur eru vinsamlegast beðnir um að virða það. Athugið að skráningargjald hækkar fyrir þá sem skrá sig á hlaupdag og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig.
Þátttökugjöld
Forskráðir: 1.500 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1995 og fyrr) 1.000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 1996 og síðar)
Skráning á keppnisstað: 2.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1995 og fyrr) 1.000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 1996 og síðar)
Hlaupaleið Hlaupið er í kringum Tjörnina í miðborg Reykjavíkur. Rásmark er við Ráðhús Reykjavíkur, hlaupið upp Tjarnargötuna, til vinstri inn á Skothúsveg, kringum syðri hlutaTjarnarinnar, beygt til vinstri og meðfram Hringbraut, þaðan inn á Fríkirkjuveg, beygt til vinstri inn á Vonarstræti og það hlaupið til enda. Beygt til vinstri og upp Suðurgötuna, inn á Skothúsveg, aftur kringum syðri hluta Tjarnarinnar, beygt til vinstri og meðfram Hringbraut, þaðan inn á Fríkirkjuveg og hann hlaupinn að Skothúsvegi, beygt inn á Skothúsveg, beygt af honum til hægri inn á Tjarnargötu og niður Tjarnargötuna en markið er við Ráðhúsið Reykjavíkur.
Kort af Víðavangshlaupi ÍR á GoogleMaps.
Tímataka Flögutímataka. Skila þarf tímatökuflögum eftir hlaup. Byssutími gildir til úrslita og röðunar í sæti.
Merkingar Kílómetrar og beygjur eru vel merkt með fánum. Annars eru þátttakendur hvattir til að kynna sér vel leiðarkort hér fyrir ofan og í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir hlaup.
Drykkjarstöðvar Boðið er upp á vatn og Powerade drykki að hlaupi loknu.
Aldursflokkar Keppt er í karla- og kvennaflokki í aldursflokkum 12 ára og yngri 13-15 ára 16-18 ára 19-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70 ára og eldri
Einnig er keppt í fimm manna sveitakeppni karla og fimm manna sveitakeppni kvenna
Salerni og fatageymsla Í Ráðhúsi Reykjavíkur. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir eða annars staðar á hlaupaleiðinni.
Aðrar upplýsingar Þar sem hlaupið er um götur borgarinnar á hluta leiðarinnar eru þátttakendur beðnir að sýna fyllstu varúð. Brautarvarsla verður við þau gatnamót þar sem umferð er þyngst. Athugið að mælst er til þess af öryggisástæðum að keppendur noti ekki iPod eða önnur álíka tæki í hlaupinu. Einnig er mælst til þess að þátttakendur hlaupi ekki með hlaupakerrur eða álíka (baby joggers).
Verðlaun fyrir Víðavangshlaup ÍR Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í mark í karla- og kvennaflokki og fyrsta karl og fyrstu konu í mark í öðrum flokkum. Einnig verðar dregnir út útdráttarvinningar og allir þátttakendur yngri en 15 ára frá þátttökuverðlaunapening.
Afmælishlaup Verkfræðingafélags Íslands Verkfræðingafélag Íslands var stofnað 19.apríl 1912 og fagnar því nú 100 ára afmæli. Af því tilefni er efnt til afmælishlaups á meðal félagsmanna í samstarfi við Víðavangshlaup ÍR. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla og kvennaflokki en sigurvegari í hvorum flokki fær til eignar listmun sem tengist afmælisárinu. Við skráningu þarf viðkomandi hlaupari að taka fram að hann sé félagsmaður í VFÍ til að hann sé skráður þáttakandi í afmælishlaupinu.
Verðlaunaafhending Við Ráðhúsi Reykjavíkur strax að hlaupinu loknu.
Ábyrgðarmenn Sigðurður Þórarinsson, hlaupsstjóri, netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sigurður Guðmundsson, hlaupsstjóri
Heimasíða skipuleggjenda með nánari upplýsingum: irsida.is
Úrslit:
2012 Smellið hér til að skoða úrslit Víðavangshlaups ÍR 2012.
2011 Smellið hér til að skoða úrslit Víðavangshlaups ÍR 2011.
2010 Smellið hér til að skoða úrslit Víðavangshlaups ÍR 2010.
2009 Smellið hér til að skoða úrslit Víðavangshlaups ÍR 2009.
|